aha...

hvað segiru títt lagsi?

20.04.2007 16:18:41 / Birta

eruði með myspace??;)

 

 

 

myspace.com/birtayr 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 14:34:12 / Birta

...

toulouse myndir komnar... fer svo til parísar á mánudaginn, kem aftur á páskadag og FER SVO Á BJARKARTÓNLEIKANA!!! það verður geðveikt...

 

 

bless. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 09:31:12 / Birta

bless!

ég er að fara út! fer suður á eftir, til london ámorgun og svo á föstudaginn fer ég eitthvert annað! jeij! það verður geðveikt! vildi baa deila þessu með ykkur, elskurnar mínar.

 

 

bæjó! sjáumst á mánudaginn þegar ég kem heim aftur!!! :D 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 00:04:40 / Birta

pleh

já. ég ákvað að blogga einu sinni enn. ætla samt bara að hætta þessu. get ekki sofnað núna, svaf til 2 í dag, lasin. var orðin geðveikt þreytt kl.hálf 11 og gerði mig til f.háttinn.. en nei, núna get ég bara ekki sofnað. svona er lífið. svo þarf ég eiginlega að fara í skólann á morgun og verð liklegast nær dauða en lífi af þreytu og jafnvel hita. jeij.

 

ÞAÐ ERU BARA 9 DAGAR ÞANGAÐ TIL ÉG FER Í ÓVISSUFERÐINA!!! vá hvað það verður gaman!

 

fór á palla um helgina. það var rosagaman! takk kristínó! þetta var stuð ;) ég er í alvörunni ennþa að hugsa um hvað það var gaman hja okkur :D "þarna er árni" er sannarlega setning helgarinnar!! HAHAHAAHAH! þetta var svo fyndið hómí!

 ég hef smakkað sake!! nananananana!

allavega... ekkert meira að fretta af mer svosem..allavega sem er blogghæft ;)

 blessó hressó!


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 19:36:37 / Birta

jah man

Yes. Komin aftur úr borg óttans. Ágætt ferðalag það. Nenni ekki að skrifa neitt samt. Orðin rosalega löt við þetta bloggerí. Kannski maður fari bara að hætta þessu rugli. Það skoðar þetta enginn hvort sem er.. hmmmm...? Nema það sé bara fólk sem vill ekki kommenta. Skil það samt alveg, getur verið erfitt að finna eitthvað að segja í svona kommentum. 

 Segiði mér eitthvað skemmtó homies!

 Nú jæja.

 

*lag dagsins ~ Mika - Grace Kelly* <-- kemur manni alltaf í gott skap ;) líka bara flott lag


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 19:06:24 / Birta

jó hó mæ hós

jæja litlu ógeðin mín. það var GEÐVEIKT um helgina!!!! vá hvað ég skemmti mér vel ;) já krakkar mínir ég þakka fyrir mig, allir sem ég hitti!

 

myndir komnar frá helginni, linkur hérna einhversstaðar, nenni ekki að finna þetta...

 

ú je

 

aha

 

 

*lag helgarinnar ~ tiga - sunglasses at night*


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 16:56:13 / Birta

djamm djamm djamm.... djamm?

ja maður er nú aldeilis vinsæll! eg er bara bókuð í djamm þangað til bara ég veit ekki hvenær ;) allavega er það í kvöld og annaðkvöld og svolau næstu helgi... jáþað þýðir ekkert annað, ég er svo æðisleg, það vilja allir hafa mig hjá sér 8) já en það er bara af þvi að eg er svo óendanlega svöl, eins og allir ættu að vita by now...

já ég prófaði að hella uppá kaffi fyrir mig í dag. við vorum að fá okkur nýja kaffivélog svo eigum við súkkulaði og möndlukaffi sem eg ákvað að prófa. mamma gerði svoleiðis handa mer um daginn og það var nú ekki slæmt! og ég drekk venjulega ekki kaffi ;) ég ætlaði semsagt að gera eins og mútter gerði en það varð ekki eins... það varð bara frekar ódrekkandi skal ég segja ykkur.  ég helli ekki uppá kaffi aftur.

ég ákvað að blogga nýtt blogg því þetta síðasta var svo hrútleiðinlegt. eins gott sko. já eg var að læra í spænsku í dag. það gekk nú barasta vel. maður er bara búinn að gleyma þessum heila hellingi af málfræði sem var í síðasta áfanga. maður er nú kominn í 403 þannig að maður verður að fara að læra þetta almennilega ;) ha???

hvar verður stuðið um helgina? hja mér ;)

*lag dagsins ~ oakenfeld ft.brittanny murphy - faster kill pussycat*

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 15:38:34 / Birta

jæja

nú er skólinn byrjaður aftur eftir 2ja vikna frí. voða stuð. byrjar af alvöru kl.8 í fyrramalið. get ekki beðið... er strax komin aðeins a eftir í spæ-fjarnaminu en eg redda þvi bara a morgun. það reddast. já. ég er að reyna að senda carmínudótið núna, netið er alveg óendanlega slow í dag. eins og alltaf reyndar. hef nú samt ekkert meira að segja, er ekki í voðalega góðu skapi í dag.

bless...

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 18:26:31 / Birta

styttist í próflokadjamm!!! :D

já bara eitt próf eftir. Íslenska a morgun. Yes indeedio. Það verður gaman um helgina maður!!! jeij! jæja... hef nú samt ekkert alltof mikið að segja akkúrat núna. Búin að setja þessar 11 myndir síðan um áramótin... var í eitthvað skrýtnu skapi þetta kvöld. ja gaman að segja fra þvi, litlu krúttin mín. segiði mer eitthvað geðveikt skemmtó.

er próflokadjamm næstu helgi eða þarnæstu?? hvor helgin verður heitari? ;)

*lag dagsins ~ peaches - set it off*

» 23 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 17:06:16 / Birta

oh my god kristín nennir ekki að vera til

Sjö manneskjur sitja í kvos Menntaskólans á Akureyri. Tvær af þessum manneskjum sitja við borð, önnur við fartölvu og hin með möppu sem er að rifna í sundur vegna of margra blaða. Á þessum blöðum eru svör við margflóknum stærðfræðidæmum. Á borðinu liggja tveir nammipokar, svali og tvær dósir af magic. Það hlær einhver. Andrúmslofið er klofið. Tvær aðrar manneskjur labba niður stigann, kíkja inn á bókasafn, taka töskur upp af gólfinu og stefna á baðherbergið. Andrúmsloftið er þrungið spennu. Manneskju með hatt finnst eitthvað geðveikt fyndið sem hún las í blaðinu sem hún heldur fyrir framan sig. Hún situr við hliðina á annarri manneskju, sem hlær líka, að einhverju sem hún las líka í blaðinu. Þær sitja hlið við hlið og hlæja dátt. Lífið er lag. Hláturinn lengir lífið.

"Nú tekurðu bara sameinaða þáttinn út fyrir svigann". "Viltu koma að finna það?" "Vá hvað þetta er leiðinlegt" "Smjatt smjatt." Hún drekkur magic. Setur dósina á borðið, sýgur uppí nefið og fer að syngja. Hún hættir því og segir:" Ertu að meina að þér finnist þetta skemmtilegt en ekki öðru fólki? Það gerist svolítið oft." *rop* "afsakið. vá hvað þetta var fyndið maður". Að hennar mati lít ég skringilega út í dag og er með voðalega mikla skoru og bendir á brjóstin á mér... Hmmmmhmmmmm...

Þessar tvær manneskjur leggja af stað út í hinn kalda og myrka heim og halda heim á leið.

» 8 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 17:21:36 / Birta

skóli

skólinn er byrjaður aftur eftir indælt jólafrí.

er að vinna í 10-11 niðrí bæ.. það er ekki mjög gaman skal ég segja ykkur. en þetta er fínt, maður fær borgað fyrir að hangsa og svona.. auðvitað geri ég eitthvað gagn samt.

nenni ekki að skrifa þrátt fyrir nógan tíma til þess... það er draugagangur í þessari búð. ég er viss um það.

bæjó.


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 18:19:11 / Birta

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!

hvernig voru svo jólin ykkar? do tell....
jólin og áramótin hjá mér voru mjög góð bara. vildi að ég gæti sagt frábær en það vantaði eitthvað, eg komst eiginlega aldrei i jolaskap og þetta var eitthvað furðulegt. JÓLAMYNDIRNAR KOMNAR!!! ...sjá hér...
anywho... hef samt ekkert að segja.... gæti nú sagt það að ég þarf að læra eins og brjálæðingur í dag og á morgun því ég er ekkert buin að læra í öllu jólafríinu og er að fara í enskupróf 4.jan, íslenskufyrirlestur 8.jan og frönskumunnlegt próf einhverntmann bráðlega líka.

já. maður djammaði nú ekkert alltof mikið núna. tók bara annan i jolum og svo áramótin. ja ég er ekkert þunn!!! þetta hefur ekki gerst lengi. já.

segið mér eitthvað skemmtó!

*lag djammsins ~ fredde le grand - put your hands up for detroit* eins og fyrri daginn ;) elska þetta lag svo geðveikt mikið!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 16:40:00 / Birta

jólajóla

GLEÐILEG JÓL !!!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 01:13:53 / Birta

leyndó

ég ætla að segja ykkur leyndo. ég er ekki komin í jólaskap og jólin eru ekki á morgun heldur hinn. þetta var samt svona líka í fyrra, þá komst ég ekki í jólaskap fyrr en kl.6 á aðfangadag. yeah. það er vitlaust dagsetning a þessu bloggi, þetta er skrifað 22.des kl.að verða miðnætti. bara svo það sé á hreinu, ég er ekki að fara yfir um.

allir farnirburt nema ástrósin og helgan mín. kristín til englands, siggi til hólmó, eva til eyja og sólveig til egilsstaða. rosalegt. en hey, ástrós og helga! við djömmum þá bara enn meira!!! ha??!?! það þýðir ekkert annað! nema ég á alltof lítinn pening en ég ætla amk að djamma annan í jólum og gamlárs. that's for sure man.

jebbs.

*lag djammsins ~ fredde le grand - put your hands up for detroit* besta lagið ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 20:46:47 / Birta

jólin nálgast sem óð fluga

myndir komnar inná myndasíðuna.. semsagt myndir síðan á árshátíð ma, jóladjammi 10-11 og svo AFMÆLISPARTÝIÐ mitt og ástrósar. check it out.......hérna...

» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13